
Klassíska línan
Hið hlýlega samspil á þeim upprunarlegu og mest einkennandi litum Ingu Elínar er það sem gerir þessa línu klassíska. Á síðustu 35 árum hefur Inga Elín hannað á um þriðja hundrað mynstra, sem byrjuðu öll í Klassísku línunni. Hvert verk er unnið úr hágæða postulíni, hábrennt og síðan vandlega handmálað sem tryggir að hvert verk er einstakt, og engin tvö eins.
Veltibollar
Espressobollar
Skýjadiskar
Mjólkurkönnur
Strýtuvasi
Stærð vasans er 20 cm x 10 cm og henta því jafnt undir smáa sem stóra vendi.
Aðrar línur
Vinsæl verk úr klassísku línunni
Listamaðurinn
Inga Elín
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.
