
Minimalískt svart postulín
Í nýju minimalísku línunni frá Ingu Elínu má finna fjórar mismunandi stærðir af Veltibollum, þar sem svartur litur postulínsins fær að njóta sín. Efri hluti bollans er glerjaður, sem finnst í sléttri áferð hans á móts við bylgjóttan neðri hluta bollans.
Stærðir í boði
Aðrar línur
Listamaðurinn
Inga Elín
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.
