Svarta Línan
Hinn fullkomna samhljóm andstæðna má finna í Svörtu línunni, þar sem hinn djúpi og djarfi svarti litur er handmálaður á hinn hvíta og náttúrulega lit postulínsins.
Gæði er grunnurinn af allri hönnun Ingu Elínar, en hvert verk er mótað úr hágæða postulíni, hábrennt og hannað til að endast vel og lengi.
Veltibollar
Espressobollar
Skýjadiskar
Mjólkurkönnur
Strýtu vasi
Stærð vasans er 20 cm x 10 cm og henta því jafnt undir smáa sem stóra vendi.
This content type will accept rich text to help with adding styles and links to additional pages or content. Use this to add supplementary information to help your buyers.
You can use product metafields to assign content to this tab that is unique to an individual product. Use tabs to highlight unique features, sizing information, or other sales information.
Aðrar línur
Listamaðurinn
Inga Elín
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.