Banner Image

Sama form, minni bolli

Bollarnir eru handmálaðir, gerðir úr fínasta postulíni sem völ er á og hannaðir svo þeir hitna ekki efst. Þeir þola uppþvottavélar og örbylgjuofna vel, allir nema þeir sem málaðir eru með þykkri 24 karata gyllingu.

Önnur verk eftir Ingu Elínu

Veltibollar

Skoða
Skýjadiskar

Skoða
Mjólkurkönnur

Skoða

Listamaðurinn

Inga Elín

Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.

Nánar um Ingu Elínu

Handgert

Hvert verk er unnið úr fínasta postulíni sem völ er á

Handmálað

Hvert verk er handmálað af mikilli nákvæmni svo engin tvö eru eins

Góð ending

Hvert verk eru hábrennt, sterkt og hannað til að standast tímans tönn