Fullkomin viðbót við Veltibollana
Mjólkurkönnurnar voru hannaðar til að vera hin fullkomna viðbót með Veltibollunum, fyrir þá sem vilja bjóða upp á mjólk með kaffinu.
Könnurnar eru mótaðar úr fyrsta flokks postulíni og vandlega handmálaðar af sérstakri alúð, sem gerir hverja mjólkurkönnu einstaka, og engar tvær eins.
Fleiri verk eftir Ingu Elínu
Vinsælar mjólkurkönnur
Listamaðurinn
Inga Elín
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.