Veltibollar
Fyrir tæplega fjórum áratugum hannaði Inga Elín fyrstu Veltibollana. Hugmyndin var að skapa haldlausa bolla með þann eiginleika að hitna ekki þar sem haldið er um bollann. Hún vildi einnig lágmarka varmatap vökvans og úr varð hið einstaka form Veltibollans, sem fellur svo vel í hendi og heldur drykknum þínum örlítið lengur heitum.
Í gegnum árin hefur Inga Elín hannað á þriðja hundrað mynstra og bætast ný við á hverju ári. Veltibollarnir eru hábrenndir, úr sterku postulíni og þola því uppþvottavélar vel. Við mælum þó með handþvotti fyrir alla bolla sem skreyttir eru með ekta gulli.
Klassíska línan
Önnur verk
Listamaðurinn
Inga Elín
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólan þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.