
Minimalíska hvíta línan
Í nýju minimalísku línunni frá Ingu Elínu má finna fjórar stærðir af Veltibollum, þar sem náttúrulegi hvíti litur postulínsins fær að njóta sín. Efri hluti bollans er glerjaður, sem finnst í sléttri áferð hans á móts við bylgjóttan neðri hlutann.
Líkt og aðrir Veltibollar þá hitna þeir ekki efst þar sem haldið er um þá og þola vel bæði uppþvottavélar og örbylgjuofna.
Nánar um stærðirnar
Minnsta stærðin er sérstaklega hönnuð fyrir þá sem elska styrk og dýpt kaffibragðsins, sem eingöngu espresso getur boðið upp á.
Við mælum með að hella ekki meira en 60ml í bollann en þannig hitnar hann ekki efst þar sem haldið er um hann. Hinsvegar rúmar bollinn í heildina 125ml og mælist 6,3 x 5,7cm.
Fyrir þá sem vilja örlítið meira, þá hentar miðstærðin vel fyrir tvöfaldann espresso, macciato og aðra smærri kaffidrykki.
Við mælum með að hella ekki meira en 110ml í bollann en þannig hitnar hann ekki efst þar sem haldið er um hann. Hinsvegar rúmar bollinn í heildina 170ml og mælist 6,7 x 6,4cm.
Vinsælasta stærðin frá upphafi, sem hentar vel undir hefðbundin kaffibolla og cappuccino en hann er einnig notaður undir kokteila.
Við mælum með að hella ekki meira en 150ml í bollann en þannig hitnar hann ekki efst þar sem haldið er um hann. Hinsvegar rúmar bollinn í heildina 260ml og mælist 7,9 x 7,6cm.
Okkar allra stærsta stærð sem er fullkomin fyrir te, kaffi latte og heitt súkkulaði eða einfaldlega fyrir þá sem vilja mikið kaffi í bollann sinn.
Við mælum með að hella ekki meira en 220ml í bollann en þannig hitnar hann ekki efst þar sem haldið er um hann. Hinsvegar rúmar bollinn í heildina 370ml og mælist 9,1 x 8,9cm.
Aðrar línur frá Ingu Elínu
Listamaðurinn
Inga Elín
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.
