Banner Image

Skeljar

Skeljar eru ljósker sem Inga Elín hannaði undir kerti en þær eru unnar úr afar sterku postulíni, sem hefur þann eiginleika að verða gegnsætt við brennslu á háum hita.

Birtan sem skín í gegnum postulínið frá Skeljunum er einstaklega hlý og skapar notalega stemingu í umhverfinu.

Listamaðurinn

Inga Elín

Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands. Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann, línu af handblásnum glerglösum og keramíkbollum.

Nánar um Ingu Elínu

Handgert

Hvert verk er unnið úr fínasta postulíni sem völ er á

Handmálað

Hvert verk er handmálað af mikilli nákvæmni svo engin tvö eru eins

Endingargott

Hvert verk eru hábrennt, sterkt og hannað til að standast tímans tönn