Skýjadiskar
Bambus
Afhending innanlands: 7–10 virkir dagar.
Lýsing
Skýjadiskurinn með mynstrinu Bambus er mótaður úr hágæða postulíni og handmálaður mikilli nákvæmni með þykkri 24 karata gyllingu. Yfirborð disksins er glerjað fyrir slétta, jafna og glansandi áferð.
Diskarnir eru 24 x 17 cm að stærð, fullkomnir fyrir bakkelsið með kaffinu, forrétti, eftirrétti og smærri rétti.
Til að varðveita fegurð gyllingarinnar, mælum við eindregið með að handþvo öll verk í Gylltu línunni, þar sem hún þolir illa ætandi uppþvottarefni og örbylgjuofna.
Nánari upplýsingar
Vörunúmer:
Vöruflokkur:
Skýjadiskar
Hafðu samband við galleríið fyrir upplýsingar um stærð, rúmmál eða umhirðu. Við aðstoðum þig gjarnan við valið.
Afhending og skil
Afhending
Sendingar innanlands berast innan 7–10 virkra daga með þeirri sendingarleið sem valin er við greiðslu. Sendingarkostnaður er reiknaður við greiðslu. Fyrir upplýsingar um afhendingartíma erlendis, vinsamlegast hafðu samband.
Vöruskil
Veittur er eins mánaðar skilaréttur frá kaupum gegn framvísun sölureiknings. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í upprunalegum, óskemmdum umbúðum. Sjá nánari skilmála um verð við vöruskil og gallaðar vörur.