Listamaðurinn á bak við verkin.
Inga Elín hóf feril sinn aðeins tólf ára gömul og hefur frá unga aldri tileinkað lífi sínu listinni. Ástríða hennar á keramík hófst í Myndlistaskóla Reykjavíkur og elti hún draum sinn um að verða listamaður og hönnuður í Listháskóla Íslands.
Þaðan var förinni heitið til Kaupmannahafnar þar sem hún stundaði nám við Skolen for Brugskunst sem er betur þekktur í dag sem Denmark Design. Hún fékk verðlaun Danadrottningar fyrir lokaverkefni sitt við skólann þar sem hún hannaði og framleiddi línur af keramík og glerglösum.
Galleríið
Inga Elín
og Kristinn
Í byrjun árs 2020 enduropnaði Inga Elín galleríið sitt við Skólavörðustíg eftir 25 ára fjarveru. Í þetta skiptið með syni sínum Kristni, sem sér um skipulags- og markaðsmál fyrirtækisins.
Galleríið er staðsett í fallegu gömlu húsi frá 1881 í hjarta miðbæjarins á Skólavörðustíg 5, á sama stað og hún var á 25 árum áður.
Einföld form.
Ríkuleg áferð.
Verk Ingu eru fjölbreytt og í stöðugri þróun, allt frá leikandi dýraskúlptúrum til nytjahluta þar sem einföld form mæta ríkulegri yfirborðsáferð.
Hafðu samband
Ef þú hefur spurningar er þér velkomið að hafa samband. Við svörum eins fljótt og auðið er.